Við bjóðum upp á heimsendingar á lyfjum fyrir þá sem eiga erfitt með að sækja lyfin sín sjálfir. Að jafnaði keyrum við lyfin heim seinnipart dags - samdægurs, hafi lyfseðill og ósk um heimsendingu borist fyrir miðjan dag. Við erum á fjórhjóladrifnum bíl og keyrum því heim í öllum veðrum og bílstjórar okkar eru einkar lagnir ökumenn og aka varlega í umferðinni. Þið þekkið bílinn okkar auðveldlega á merkingunum.
Brostu þegar þú sérð bílinn okkar í umferðinni, það er aldrei að vita nema þú fáir bros til baka!